Egzaminy z j. polskiego, auglýsing um stöðupróf í pólsku

1049

Auglýsing um stöðupróf í pólsku

Stöðupróf í pólsku (allt að 20 framhaldsskólaeiningar) verður haldið í Kvennaskólanum í Reykjavík miðvikudaginn 25. október 2017 klukkan 17:00.
Prófið verður í stofu N2, í aðalbyggingu skólans að Fríkirkjuvegi 9.
Ef nemendur vilja nýta tækifærið geta þeir skráð sig í prófið með því að senda póst á kvenno@kvenno.is ekki síðar en á hádegi 23. október.

Prófgjald er kr. 13000 sem greiðist með því að leggja það inn á reikning: 0513-26-14040, kt. 6502760359.

Nauðsynlegt er að nafn og kennitala próftaka komi fram.

Vinsamlegast sendið afrit af kvittuninni á kvenno@kvenno.is.

Réttur til próftöku byggist á að prófgjald hafi verið greitt og auk þess verða próftakar að framvísa persónuskilríkjum með mynd þegar komið er í prófið.